Já heil og sæl öll sömul, langt síðan seinast, man ekki einu
sinni hvað ég bloggaði um seinast... en já what ever...
Byrjum bara á páskunum, þeir voru voða þægilegir fyrir
mig, fór og skellti mér austur í Svínafell til Steinu og hafði að
fínt þar um páskana...
Svo man ég ekki meir... eða jú, ég á núna bara 2 vikur
eftir í skólanum, og það eiga eftir að vera 2 erfiðar vikur með
erfiðum kennara, vonandi les hann þetta ekki, þá er hann gegt easy
kennari 
Og ég er einnig búinn að vera einn heima síðan á þriðjudaginn
seinasta og yfirvaldið kemur svo heim á morgun, og ég er bara búinn
að halda eitt pókerkvöld... that's it, ekkert meir... voða slappur
í þessu.
En svo verður nóg að gera um helgina, fyrst er ég að fara
að vinna frá miðvikudeginum til sunnudagsins á kvartmílusýningu sem
verður í rvk um helgina, gegt stuð og svo fer ég á feitt fyllerí á
laugardaginn, Árshátíð L2C, og þar verð ég fullur að vanda... eða
það er nú reyndar ekkert svo erfitt....
Taka bjór úr poka, opna bjór, lyfta bjór, taka sopa, slaka
bjór niður... og svo endurtaka þetta svona 500 sinnum... + bolla og
jello skot líklega og árshátíðarmyndband (sem ég kem fram í á
g-streng
) og geggjaður matur... en já, farinn að þrífa áður en
yfirvaldið kemur á morgun 
G-Strengur er ekkert svo óþægilegur... ef hann er með poka fyrir
"The Royal Crown Jewels"
Röggi DSM